Valur 3.fl. kvk. fimmtudagurinn 9. okt. 2014

Valur 3.fl. kvk. fimmtudagurinn 9. okt. 2014
技术训练-传接球 U14
Grunntækni 1

transition image

A) 3 saman með 2 bolta. Einn er í hlutverki batta, þ.e. tekur á móti og gefur sendingu til baka. Hinir tveir skiptast á að senda inn á battann og hörfa svo með boltann til hægri eða vinstri.

B) Sama og í A. Nú er gefið á batta og hlaupið á eftir sendingunni, batti leggur boltann í hlaupaleiðina og leikmaðurinn rekur boltann yfir á gagnstæða keilu. Æfingin endurtekin með gagnstæðum fæti.

C) Þrír saman með einn bolta. Einn vinnur í einu, sá hleypur eftir sendingu umhverfis þann sem hann sendi á og fær þá sendingu frá þeim þriðja. Sendir til baka og hleypur út fyrir og umhverfis hann.

Grunntækni 2

transition image

D) Sama og í C, en nú spilar sá sem vinnur 1, 2 og fylgir svo sendingunni yfir og endurtekur leikinn með gagnstæðum leikmanni.

E) Sama og í D, en nú á að rekja boltan á milli battanna eftir að hafa spilað 1, 2.

F) Sama og í E, en nú á að senda, fylgja og fara yfir boltann.

G) Sama og í F, en með tvo bolta og draga boltann eftir mótttöku.

Tækniþjálfun 1

transition image

4 liða skallatennis. 20 x 20 m velli er skipt í fjóra hluta og í hverjum hluta er lið skipað tveimur leikmönnum. Liðið getur reynt að skora hjá öllum hinum liðunum. Boltinn má skoppa einu sinni í jörðu og leikmenn hafa tvær snertingar til að koma honum út úr sínum reit.

Tækniþjálfun 2

transition image

4 á 4 (+ 1) horn í horn. Við vinnum í sendingum, að hreyfa okkur boltalaus og halda boltanum innan liðsins og pressa til að vinna boltann. Hvort lið er með tvo leikmenn inni í reitnum og aðra tvo sem standa í keilumörkum í hornunum. Markmiðið er að spila boltanum frá horni yfir í horn, en með að minnsta kosti 3 sendingum inni í miðsvæðinu. Ef spilað er með joker er hægt að takmarka snertingar hans við 1 eða 2.

Áherslur þjálfara:

1) Hægt er að breyta reglum varðandi fjölda sendinga í miðsvæði, fjölda snertinga o.s.fr.

2) Ef hornamenn meiga aðeins nota eina snertingu, verða samherjar þeirra að passa að staðsetja sig þannig að þeir hafi alltaf fleiri en einn möguleika til að spila boltanum.

Tækniþjálfun 3

transition image

Sendingahringur með fyrirgjöf og skoti. Að minnsta kosti 8 til 10 leikmenn + markmaður taka þátt í þessum sendingahring, þar sem leikmenn færast á milli allra staða á vellinum. Leikmenn fylgja sendingunum í fyrstu 6 stöðunum, en kantmaðurinn í 7 stöðunni rekur boltann upp kantinn og gefur fyrir á þá tvo leikmenn sem taka krosshlaup inn í teyginn. Þegar sóknin er búin færist annar sóknarmannanna á byrjunarreit, en kantmaðurinn sem gaf fyrir færist í stöðu sóknarmanns.

Spil.

transition image

Spilað á stóran völl. Fyrstu 15 mín. með tveimur snertingum á varnarhelmingi og frjálsum snertingum á sóknarhelmingi, svo seinni 15 mín. frjálst en þá verða allir að vera komnir yfir miðju til að hægt sé að skora.